Leikskólinn í janúar 2015
- 108 stk.
- 29.01.2015
Ýmislegt hefur verið brallað í leikskólanum í janúar, þorrablót, afmæli, við gerðum kíki og víkingahjálma og fleira og fleira :)
Skoða myndirÝmislegt hefur verið brallað í leikskólanum í janúar, þorrablót, afmæli, við gerðum kíki og víkingahjálma og fleira og fleira :)
Skoða myndirÍ dag var ekki bara bóndadagur, heldur líka sparifatadagur (lopapeysudagur á leikskólanum) og svo héldum við þorrablót. Það hafa nú einhvern tíma verið settar inn myndir af minna tilefni!
Skoða myndirUmhverfi skólans er hálfgerð undraveröld þegar sólin tekur að skína og hægt er að leika sér í snjónum milli trjánna. Hér er yngsta stigið í essinu sínu.
Skoða myndirAð venju hélt ungmennafélagið þrettándagleði í skólanum. Kvenfélögin í Hlíð og Jökuldal buðu upp á kaffi, ungmennafélagið Ásinn og björgunarsveitin Jökull fóru yfir starfsemi liðins árs, hefðbundin spurningakeppni var til staðar og nemendur fluttu tónlistaratriði. Í lokin stóð björgunarsveitin fyrir flugeldasýningu áður en allir fóru heim. Við þökkum þeim sem mættu kærlega fyrir komuna :-)
Skoða myndirNemendur unglingadeildar hafa verið að vinna veggspjöld þar sem þau túlka bókstaflega ýmis orðtök og orðatiltæki íslenskunnar. Afraksturinn er vægast sagt stórskemmtilegur. Hér eru spjöldin - í hlutum til að myndirnar fái notið sín sem best.
Skoða myndirÞá koma hérna myndir af Litlu-Jólunum, undirbúningi þeirra, jólagjafagerð, jólamatur og fleira
Skoða myndir