- 62 stk.
- 04.11.2014
Við vorum heldur hress þriðjudagsmorguninn í þessari viku og drifum okkur öll út, þótt frostið stæði í níu gráðum eða svo. Fyrst fór lunginn úr hópnum í leiki meðan umhverfisnefndin kveikti eld og svo var poppað og bökuð kaka í forláta potti sem Agnieszka lumaði á. Sólin lét sjá sig og skein skært til að taka úr okkur mesta hrollinn, þetta var ógurlegt fjör, en alveg ísjökulkalt og gott að vera vel klædd.