Á döfinni ... lesið!

Það er hreint brjálað að gera framundan og eins gott að fylgjast vel með! 

Á morgun, miðvikudaginn 29. október fer Spurningakeppni grunnskólanna fram í Egilsstaðaskóla. Keppnin hefst klukkan hálfsjö, allir eru velkomnir að fylgjast með. Lið Brúaráss skipa þau Örn, Aron og Lára. Gangi þeim vel!

Á fimmtudagskvöld mega þeir sem ætla að keppa í Samfellu mæta í Sláturhúsið til að æfa sig fyrir keppnina.

Á föstudaginn - sem líka er Hrekkjavaka - verður svo Stíll/Samfella í Sláturhúsinu og hefst klukkan hálfátta. Brúarás á tvö lið í hönnunarkeppninni og að minnsta kosti sex flytjendur í söngkeppninni þannig að við hvetjum okkar fólk til að mæta og styðja við okkar frábæru keppendur.