Aðeins - og alltof seint - um þrettándagleði :-)

Hin hefðbundna þrettándagleði var haldin um daginn að venju. Ungmennafélagið Ásinn og björgunarsveitin Jökull fóru yfir starfsemi sína, spurningakeppnin var á sínum stað og nemendur fluttu tónlistaratriði. Kvenfélögin í Hlíð og á Jökuldal buðu upp á kaffi og í lokin var björgunarsveitin með flugeldasýningu. Við þökkum öllum sem létu sjá sig kærlega fyrir komuna! Myndir hér.