Áfram í Spurningakeppni grunnskólanna!

Jæja, liðið okkar komst áfram í sextán liða úrslit í spurningakeppninni sem fór fram í kvöld í Egilsstaðaskóla - til hamingju með það, Örn, Aron og Lára, vel gert! Okkur hinum fullorðnu sem vorum viðstödd fannst spurningarnar bara þrælerfiðar og þau standa sig vel. Nú bíðum við bara eftir fréttum af því hvar og hvernig framhaldið verður, það verður líklega ekki ljóst fyrr en í lok nóvember. Hiphiphúrra!