Foreldradagur fimmtudaginn 22. ágúst

Kæru foreldrar og forráðamenn

Skólaárið hér í Brúarási hefst með foreldradegi fimmtudaginn 22. ágúst næstkomandi. Þá mæta nemendur í sína heimastofu með foreldrum og hitta þar umsjónarkennara og fleiri sem koma að kennslu þeirra hóps. Í vetur verður nemendum skipt í þrjá umsjónarhópa. Nemendur í 1.-5. bekk verða saman í stofu á neðri hæð sem heitir Eyjasel og umsjónarkennari þess hóps verður Sarah Skindbjerg Larsen. 6.-8. bekkur verður saman í stofu á efri hæð sem heitir Sleðbrjótssel og umsjónarkennari þess hóps verður Þórey Eiríksdóttir. 9.-10. bekkur verður saman annari í stofu á efri hæðinni seim heitir Hrúthamrasel og umsjónarkennari þess hóps verður Kristín Högnadóttir.

Tímasetningar á fimmtudag verða eftirfarandi:

9.-10. bekkur kl. 13:00 í Hrúthamraseli Sleðbrjótsseli
6.-8. bekkkur kl. 13:30 í Sleðbrjótsseli
1.-5. bekkur kl. 14:00 í Eyjaseli

Við hlökkum til að hitta ykkur öll á fimmtudaginn og svo mun hefðbundið skólastarf hefjast stundvíslega 8:55 daginn eftir föstudaginn 23. ágúst.