Til hamingju með Stíl og Samfellu!

Það var gaman í kvöld - allir keppendur í Samfellu sungu og spiluðu frábærlega og voru skólanum til sóma. Sigurjón og Lára og spilafélagar þeirra lentu í öðru sæti og eru að fara að keppa á Samaust! Liðin í Stíl stóðu sig líka vel, og eru bæði á leið til Norðfjarðar líka. Til hamingju allir Brúarássnemendur sem voru að keppa, við vorum virkilega stolt af ykkur öllum.